laugardagur, nóvember 29, 2003
Kapítalisminn hruninn
Það hefur sýnt sig enn og aftur. Skorri týndi debetkortinu sínu. Missti ég eitthvað? Nei, ég held áfram að lifa mínu einfalda, saklausa lífi.
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
Rauður poki
Það var þannig að ég var sitjandi á almenningsbekk, í mínu mesta sakleysi. Allt í einu kemur fjúkandi að mér poki. Venjulega myndi ég ekki bregðast neitt sérstaklega við, en það var eitthvað sérstakt við þennan poka. Svo ég tek hann upp og ekkert leynist í honum, ég finn fyrir því að ég er örlítið vonsvikinn, en bæli þær tilfinningar sökum þess að þær eru ekki eðlilegar. Hver býst við að finna eitthvað í fjúkandi plastpoka? Hver býst við að vinna digital myndavél fyrir það eitt að eiga debetkort? Ég á debetkort, fékk ég myndavél? Nei.
Ég læt pokann í vasann. Horfi í kringum mig og skokka létt í burtu, með sakleysislegt bros á vörum og hugsa góðar hugsanir. Hvers vegna? Nú, vegna þess að eignir eru böl!
LIFI BYLTINGIN!
Ég læt pokann í vasann. Horfi í kringum mig og skokka létt í burtu, með sakleysislegt bros á vörum og hugsa góðar hugsanir. Hvers vegna? Nú, vegna þess að eignir eru böl!
LIFI BYLTINGIN!
sunnudagur, nóvember 09, 2003
Bandaríkja-frí
Nú er síðan ekki bara Feminísta-frí, heldur einnig Bandaríkja-frí. Tel ég þetta vera stórt skref heimasíðunnar í átt að fullkomnun.
Einnig eigiði von á fleiri verkum á næstunni, svo var ég að hugsa um að breyta titilmyndinni hér til hliðar.
Sjáumst hress, klukkan sex. Borðaðu kex, en ekki kless-a það.
Bless.
Einnig eigiði von á fleiri verkum á næstunni, svo var ég að hugsa um að breyta titilmyndinni hér til hliðar.
Sjáumst hress, klukkan sex. Borðaðu kex, en ekki kless-a það.
Bless.
föstudagur, nóvember 07, 2003
Bananar
Það er komið nýtt verk út eftir mig. Það ber nafnið 'Bananar'.
Tantaliiised!
Ha, Palli?
sunnudagur, nóvember 02, 2003
Feminist-Free
Já, það er rétt... pafinn.blogspot.com er orðinn Feminist-Free! Hér ríkir það sem ég kýs að kalla pamatríarkí og því fáum við ekki framgengt með hræsnara ógeðum.
Einnig hef ég bætt við link á Lenu.
Einnig hef ég bætt við link á Lenu.